Koel Fila suede – barefoot skór

18.900 kr.
Setja á óskalista Þegar á óskalista
Brands:

Hvernig hljóma falleg rúskins-ökklastígvél sem eru líka einstaklega þægileg? Rúskins útgáfan af Fila frá Koel eru barefoot chelsea ökklaskór með miðlungsvíðu táboxi sem veitir tánum nægilegt rými til þess að hreyfa sig. Efra lagið er úr rúskinni, sem er bæði endingargott og þægilegt. Skórnir eru fóðraðir með krómfríu leðri sem er góður kostur fyrir heilbrigða fætur og betra umhverfi. Hvort sem þú ert að klæða þig upp fyrir sérstakt tilefni, eða ef tilefnið er hversdagslegt, hvort sem þú ert á ferðinni innanbæjar eða uppi í sveit, passa þessir skór við flest.

Efni:

  • Upper Material: Suade
  • Lining: Leather
  • Sóli: Gúmmí
  •  Innsóli: Úr endurunnu efni, hægt að skipta út
  • Lokun: Rennilás á hlið og franskur rennilás
  • Flatur sóli: 0,5cm

Eiginleikar:

               

Umhirða:

Til þess að fjarlægja óhreinindi er best að þurrka af skónum með votum klút. Forðist að nota ertandi hreinsiefni sem geta skemmt efnin. Þegar skórnir eru ekki í notkun skal geyma þá á svölum, þurrum stað, ekki í beinu sólarljósi. Til að koma í veg fyrir aflögun skal forðast að setja þunga hluti ofan á skóna.

Stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41, 42, 43

Stærðartafla

Koel Chelsea
Til þess að mæla fótinn þinn þarft þú A4 blað og blýant.
  1. Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
  2. Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
  3. Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
  4. Taktu fótinn af blaðinu
  5. Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
stærðfits feet this longbreidd
3621.7-22.3cm8.5cm
3722.8-23.4cm8.7cm
3823.4-24.0cm8.9cm
3924.0-24.6cm9.2cm
4024.7-25.3cm9.2cm
4125.3-25.9cm9.4cm
4225.6-26.2cm9.4cm
4326.3-26.9cm10.1cm
4427.0-27.7cm10.3cm
 
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
  1. Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
  2. Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar
Þú ættir að fá sömu niðurstöðu með þessum hætti og með aðferðinni sem er lýst hér að ofan. Ef þú ert enn ekki viss, eða ert á milli tveggja stærða, þá er oftast betra að taka stærri stærðina þar sem fætur geta vaxið og sokkar geta bætt nokkrum millimetrum við.