Innkaupakarfan er tóm
Koel Faro
24.310 kr.
Faro eru barefoot kuldaskór frá Koel. Þeir eru úr hydro leðri sem hrindir frá sér vatni, þannig að fæturnir haldast þurrir. Skórnir hafa bæði reimar og rennilás, og laga sig þess vegna að ökklanum en það er jafnframt auðvelt og fljótlegt að fara í og úr.
Skórnir eru klæddir með lambsull til þess að halda á þér hita. Þeir eru miðlungsbreiðir og hafa nóg pláss til þess að hreyfa tærnar. Sólinn er stamur, 0,5cm þykkur, og úr 100% náttúrulegu gúmmíi. Innsólinn, sem er laus, er framleiddur úr endurunnum efnum.
Til þess að hreinsa skóna að utan er best að nota rakan klút.
Efni:
- Efra lag: Hydro leður
- Fóðrun: Lambsull
- Sóli: 100% náttúrulegt gúmmí
- Innsóli: Úr endurunnuefni, hægt að skipta út
- Lokun: Reimar og rennilás
- Flatur sóli: 0,5cm
Eiginleikar:
Um Koel:
Koel leggur áherslu á gæði, góð snið, nýsköpun, hönnun og sjálfbærni. Skórnir frá Koel eru hannaðir og framleiddir í portúgal og byggja á langri reynslu í því að búa til sóla sem endast, ásamt nýjustu þekkingu á sjálfbærum efnum og skóm sem passa vel.
stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41, 42, 43, 44 |
---|---|
litur | chocolate, bordo |
Stærðartafla
- Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
- Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
- Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
- Taktu fótinn af blaðinu
- Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
- Bættu 0,5-1,2cm til þess að gera ráð fyrir plássi í skónum fyrir framan tærnar
stærð | fits feet this long | breidd |
---|---|---|
36 | 21.7-22.3cm | 8.5cm |
37 | 22.8-23.4cm | 8.7cm |
38 | 23.4-24.0cm | 8.9cm |
39 | 24.0-24.6cm | 9.2cm |
40 | 24.7-25.3cm | 9.2cm |
41 | 25.3-25.9cm | 9.4cm |
42 | 25.6-26.2cm | 9.4cm |
43 | 26.3-26.9cm | 10.1cm |
44 | 27.0-27.7cm | 10.3cm |
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
- Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
- Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar