Innkaupakarfan er tóm
Koel FILA Chelsea
18.615 kr.
FILA frá Koel eru Chelsea ökklaskór með Bernardo sóla og víðu táboxi sem er sérstaklega hannað fyrir konur. Þá er sólinn þunnur og flatur, en líka stamur til þess að minnka líkurnar á því að renna til í hálku eða bleytu.
FILA Chelsea ökklaskórnir eru hlýir og þægilegir, fóðraðir með merínóull og lokast bæði með teygju og rennilás.
(minimalískir skór)
Efni
- Hydro leður
- Lokast með teygju og rennilás
- Endurunninn innsóli
- Fóðrun úr merínóull
- Gúmmísóli
Hydro leður
Hydro leður hrindir frá sér vatni, þannig að skórnir henta vel í rigningu og blotna ekki auðveldlega í gegn. Efnið er jafnframt mjúkt og endist vel.
Vegna þess að efnið hrindir frá sér vatni þorna skórnir fljótt.
Umhirða
- Ekki er hægt að þvo skóna
- Til þess að fjarlægja ryk er best að nota mjúkan bursta og strjúka alltaf í sömu átt
- Til þess að fjarlægja bletti er best að nota smáar hreyfingar með venjulegum bursta yfir blettnum
- Fjarlægja má gúmmíleifar af skónum með þurrum klút
- Ekki þrífa skóna með vatni, þetta getur valdið blettum
- Það þarf að halda skónum frá útfjólublárri geislun sólarinnar og dýpri snertingu við vökva. Annars geta skórnir misst vatnsfráhrindandi eiginleika sína og aflitast.
Um Koel
Koel leggur áherslu á gæði, góð snið, nýsköpun, hönnun og sjálfbærni. Skórnir frá Koel eru hannaðir og framleiddir í portúgal og byggja á langri reynslu í því að búa til sóla sem endast, ásamt nýjustu þekkingu á sjálfbærum efnum og skóm sem passa vel.
stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41, 42, 43 |
---|
Stærðartafla
- Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
- Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
- Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
- Taktu fótinn af blaðinu
- Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
- Bættu 0,5-1,2cm til þess að gera ráð fyrir plássi í skónum fyrir framan tærnar
stærð | fits feet this long | breidd |
---|---|---|
36 | 21.7-22.3cm | 8.5cm |
37 | 22.8-23.4cm | 8.7cm |
38 | 23.4-24.0cm | 8.9cm |
39 | 24.0-24.6cm | 9.2cm |
40 | 24.7-25.3cm | 9.2cm |
41 | 25.3-25.9cm | 9.4cm |
42 | 25.6-26.2cm | 9.4cm |
43 | 26.3-26.9cm | 10.1cm |
44 | 27.0-27.7cm | 10.3cm |
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
- Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
- Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar