Be Lenka Synergy – barefoot skór

25.700 kr.
20.560 kr.
Setja á óskalista Þegar á óskalista

Vantar þig létta og þægilega hversdagsskó sem fara vel með fæturna þína? Synergy frá Be Lenka eru fallegir barefoot skór með tímalausa hönnun, sem passa jafnt við gallabuxur, jakkaföt, og flest þar á milli. Ásaumaður sóli lengir endinguna á þessum skóm sem eiga án efa eftir að vera í uppáhaldi.

Efni:

  • Efra lag: Leður (nubuck)
  • Fóðrun: Leður og textíll
  • Sóli: TR (EverydayComfort)
  • Innsóli: Endurunnið PU og bómull (hægt að fjarlægja)

Eiginleikar:

  • Skór sem henta öllum kynjum, úr hágæða nubuck leðri
  • EverydayComfort sóli með mótuðu gripi sem veitir góða tengingu við það sem gengið er á
  • Tímalaus hönnun með sóla sem er saumaður tryggir góða endingu
  • Hannaðir til þess að vera þægilegir allan daginn
  • Framleiddir í Slóvakíu

Barefoot eiginleikar:

  • Mjög sveigjanlegur sóli
  • Engin hækkun frá hæl að tá, styður við góða líkamsstöðu
  • Vítt tábox
  • Léttir
Stærð

38, 39, 40, 41, 42, 43

litur

Grey, Black

Stærðartafla

Synergy
Til þess að mæla fótinn þinn þarft þú A4 blað og blýant.
  1. Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
  2. Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
  3. Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
  4. Taktu fótinn af blaðinu
  5. Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
  6. Bættu 0,5-1,2cm til þess að gera ráð fyrir plássi í skónum fyrir framan tærnar
StærðLengdBreidd
3824.49.9
3925.110.1
4025.710.3
4126.410.5
4227.410.8
4328.011.0
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
  1. Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
  2. Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar
Þú ættir að fá sömu niðurstöðu með þessum hætti og með aðferðinni sem er lýst hér að ofan. Ef þú ert enn ekki viss, eða ert á milli tveggja stærða, þá er oftast betra að taka stærri stærðina þar sem fætur geta vaxið og sokkar geta bætt nokkrum millimetrum við.