Um Fínt

Fínt er hér til að hjálpa þér að komast í gegn um daginn þannig að þér líði vel, og finnist þú líta vel út. Við bjóðum upp á vörur sem hjálpa þér að gera það sem þú vilt gera, og gera það betur.

Við viljum koma góðum vörum sem auðvelda lífið að á íslenskum markaði. Við höfum valið inn vörur frá framleiðendum sem leggja mikið upp úr sjálfbærni, og sem framleiða við góðar aðstæður. Þar að auki höfum við valið vörur sem ættu að endast og koma í ýmsum útfærslum. Við vonum að þú getir fundið það sem þú leitar að!

Fínt var stofnað í september 2023 af Marjolein Overtoom og Sölva Karlssyni. Áður en þau fluttu til Íslands bjuggu þau í Hollandi þar sem þau kynntust ýmsum vörum sem erfitt er að finna á Íslandi. Með Fínt vilja þau koma hluta af því vöruúrvali sem finna má á meginlandi Evrópu til Íslands.

Fínt er fyrst og fremst vefverslun og rekur ekki hefðbundna verslun. Ef þú vilt máta eða skoða vörurnar okkar má þó alltaf mæla sér mót. Við erum á Urðarstígir 3, 101 Reykjavík, og best hentar að mæla sér mót til þess að máta eða skoða á virkum dögum milli 9 og 15. Það er hægt að hafa samband með því að senda okkur tölvupóst í fint@fint.is eða með því að nota vefform.

Fínt ehf.
fint@fint.is
Kt. 620823-0820
VSK nr. 149831

#